Litla Ljót

Litli Laganeminn

18.04.2008 14:36:53 / ingahelga

komin með nýja síðu

ég er komin með nýja bloggsíðu....

litlilaganeminn.bloggar.is



» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 08:31:49 / ingahelga

koma svo


*Miðnafnið þitt*
*Aldur*
*Single or Taken*
*Uppáhalds bíómynd*
*Uppáhalds lag*
*Uppáhalds hljómsveit*
*Uppáhalds búð*
*Tattoo eða göt*
*Þekkjumst við persónulega*
*Hver er tilgangurinn með lífinu*
*Myndirðu bakka mig upp í slagsmálum*
*Myndirðu þegja yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli*
*Besta minningin þín um okkur*
*Myndir þú gefa mér nýra*
*Segðu eitthvað skrýtið um þig*
*Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik*
*Getum við hist og bakað köku saman*
*Hefurðu heyrt kjaftasögu um mig nýlega*
*Talarðu eða hefurðu talað illa um mig*
*Finnst þér ég góð manneskja*
*Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið*
*Finnst þér ég aðlaðandi*
*Hverju myndir þú vilja breyta í mínu fari*
*Í hverju sefurðu*
*Kæmirðu í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla*
*Ef ég ætti einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera saman*
*Ætlarðu að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út*

» 9 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 13:42:58 / ingahelga

febrúar kominn... og örugglega bráðum farinn... 2 mánuðir í ritgerðarskil - Bolludagur á morgun

hæ hæ

ég er búin að vera á leiðinni að blogga núna síðustu vikuna en þar sem ég er búin að vera í letikasti dauðans þá hef ég bara ekki nennt að hugsa upp eitthvað til að skrifa hérna 8)

Það er barasta kominn febrúar og janúar bara búinn... það þýðir að 1/12 af árinu er búinn og árið bara var að byrja... spáið í því!!!!

en já, janúar.... Magni minn er búinn að útskrifast, ég er á fullu að reyna að gera ritgerðina mína og læra og að vera löt... letin verður nú oftast ofan á 8|  öss... gengur ekki

Í gær fór ég í svona kveðjuboð hjá Silju (frænku)... hún er nebblega að fara sem skiptinemi til Argentínu í 11 mánuði!!! úff hvað það verður örugglega skemmtilegt!! bara sól og hiti og læti og heitir argentínskir latino gaurar :haha: he he he

en já, ég er núna bara í vinnunni minni, síðan á morgun er ég að fara á fund til umsjónarkennara ritgerðarinnar minnar þar sem hún segir mér örugglega að það sem ég er búin að skrifa hingað til sé algjört drasl og að ég verði að byrja upp á nýtt!! he he he eða ekki,... kemur í ljós

jæja,,,, ætla að reyna að læra eitthvað

verð samt bara að skella inn einni mynd af Helga Snæ sætasta

 

 


 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 17:12:31 / ingahelga

að reyna að skrifa ritgerð

núna er skólinn byrjaður á fullu, en ég er engan veginn að nenna að byrja að læra aftur :S er núna þessa síðustu viku búin að vera að reyna að vinna í ritgerðinni minni en gengur ekkert rosalega vel... er meira svona að flétta í gegnum það sem er komið og vera hugmyndasnauð og vonlaus :D hi hi, jamm gengur rosa vel

reyndar er búið að ganga aðeins betur í dag... búin að ná að skrifa eitthvað aðeins

Magni minn er að fara að útskrifast á laugardaginn, sem tæknistúdent. er ekkert smá stolt af honum :haha:, núna er hann svo bara að vinna hjá SSgólf, sem sagt hjá pabba sínum, og síðan í haust ætlar hann að byrja í tölvunarfræði í HR. svvooo dugleg þessi elska

Við erum búin að ákveða hvenær við ætlum að skella okkur to the big apple (New york), en það verður hinn 22. maí og við ætlum að vera þarna í heila 10 daga :!: verður sko geggjað. erum búin að panta okkur hótel og svollis, verðum eiginlega bara á miðju Manhattan, í Greenwich Village, sem stutt frá chinatown, soho, litle itali og öllu þessu :haha: ohh hvað mann er farið að hlakka til!!! en áður en að þessu kemur á ég eftir að þurfa að klára ritgerðina mína og fara í eins og þrjú próf;)

 En við ætlum nú ekki að fara bara tvö, heldur ætlar Hákon (vinur hans magna) og stína að koma með okkur og túristast með okkur þarna :D

jæja, ætla að reyna að gera eitthvað aðeins meira í þessari ritgerð minni áður en ég gefst upp og fer að horfa á jericho (úff hvað er gaman að eiga svona marga þætti sem maður á eftir að horfa á:D

adios

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 19:31:46 / ingahelga

árið 2008 komið

Gleðileg jól allir og nýtt ár og sollis

Núna eru jólin bara að verða búin og styttist í að skólinn byrji á ný

Ég ákvað að eyða jólunum öllum bara á selfossi hjá P&M og það var barasta æði. fór þangað 22. des og kom svo ekki heim fyrr en í gær...

Helgi Snær litli frændi ákvað að fagna fyrstu jólunum sínum með því að leggjast inn á spítala á þorláksmessu og halda sig þar næstu 4 dagana... já það borgar sig að vera ekkert að stressa sig á þessum jólum ;) he he, nei annars fékk kúturinn þennan blessaða RS-vírus og það var svo mikið slím í lungunum hans að hann náði ekki að anda nægilega vel og neitaði svo að borða þannig að hann var bara settur í súrefni og með næringu í æð 8| greyið.... en hann er nú allur að koma til núna krúttið og kom á selfoss með fjölskyldunni yfir áramótin. (hann var b.t.w. í fréttunum á stöð , 26. des)

en já um áramótin kom svo bróðir minn og fjölskyldan hans og við voru öll (fyrir utan magna) saman um áramótin....

núna er maður svo bara komin aftur í bæinn, vinna um helgina og svo skólinn á mánudaginn.... núna í næstu viku verð ég á námskeyði í hvernig maður á að skrifa BA-ritgerð og svo byrjar skólinn á fullu vikuna þar á eftir... annars var mín rosalega dugleg og byrjaði á ritgerðinni sinni í jólafríinu... skrifaði alveg nokkrar blaðsíður.... sem á síðan örugglega eftir að endurskrifa nokkru sinnum8)

en já

ætla að fara að laga tölvuna mína...

tjá..

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 18:22:32 / ingahelga

1 próf búið

í morgun fór ég í fyrsta próf þessarar annar og var það hinn blessaði Evrópuréttur sem fékk að spreita sig þar.... við skulum bara bíða þangað til í janúar til að spá hvernig útkoman úr því verður..... :S er bara alls ekki viss....

í dag átti síðan að taka marathon lestur í kröfurétti þar sem prófið í því er á morgun, flestir vita það svo sem að það er mjög erfitt að setjast beint niður eftir próf og fara að lesa fyrir næsta.... og ég get ekki beint sagt að það hafi heppnast vel hjá mér í dag.... ein helsta sönnunin fyrir því er nú bara þessi færsla hérna.... gæti verið að lesa mér til um galla í fasteignum eða greiðslustaði krafna, en neee ég ákvað að blogga í staðin ;)

Á morgun er s.s. próf hjá minni kl 9-12 og síðan um kvöldið ætla ég að fara á jólahlaðborð í vinnunni minni, sem verður vonandi mjög skemmtilegt þó að ég verði örugglega eina edrúa manneskjan á svæðinu

síðan er mín að vinna um helgina en ætla nú að reyna að læra sem mest bara í vinnunni, þannig að ef þið höfðuð einhverjar hugmyndir um að mæta á bókasafnið um helgina.... SLEPPIÐ ÞVÍ!!! :klikk:

síðan á fimmtudaginn næsta er próf hjá mér í réttarfari þannig að ég á örugglega ekki eftir að blogga aftur fyrr en á miðvikudagskvöldið... þá er ég örugglega jafn vel stefnd fyrir lærdómi og núna 8|

annars ætla ég nú bara að láta þetta gott heita....

 Vill samt óska henni Bessý til hamingju með afmælið í gær.... já það kemur víst alltaf að því að þú náir okkur hinum í aldri.... alla vegana í þessa 26 daga á ári ;) he he

tjá 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.11.2007 16:09:22 / ingahelga

enn og aftur komin ný vika

með þessu áfram haldi fer ég að halda upp á fertugsafmælið mitt eftir nokkra mánuði, tíminn líður svo hratt

annars er ekkert merkilegt búið að gerast upp á síðkastið, það er bara alltaf það sama.... vinna, skóli. læra..... o.s.frv....

á fimmtudaginn fór ég í heimsókn til hennar Sollu, ásamt henni Örnu.... maður verður að reyna að koma sér út úr húsi öðru hvoru og hitta annað fólk... maður er að verða hálfgerður einbúi :S og heyrir bara í fólki á MSN!!

Síðan fóru pabbi og mamma hans Magna til Amsterdam um helgina þannig að við fluttum yfir til þeirra svona rétt um helgina til þess að hafa auga með staðnum... annars var voðalega lítið gert um helgina.
við fórum samt í IKEA á sunnudaginn og keyptum okkur vegghillu inn í herbergi og svo rosa kósí seríu til að hafa fyrir ofan rúmið okkar :) loksins kominn einhver litur inn í herbergið okkar :D ekki lengur bara hvítt og svart

núna eru bara 2 vikur eftir af skólanum og meira að segja mínus einn dagur.... stressið eykst líka með hverjum deginum sem líður... ekki bætti svo úr skák að grey bíllinn okkar ákvað að bila í morgun, okkur magna ekki til mikillar gleði þar sem þessi elska þarf að koma okkur báðum í skólann á morgnanna.... mér niður í hí og svo magna upp á höfða :$ uhu....

hmm... veit eiginlega ekki hvað fleira ég á að skrifa hérna.... sit nú bara í vinnunni og hafði ekkert að gera þannig að ég ákvað að skella inn einu bloggi mér til skemmtunar....

ble

kv. Litli "stressaði" laganeminn

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 09:42:43 / ingahelga

tíminn líður svo hratt!!

það er bara kominn aftur þriðjudagur... get svo svarið að síðasti þriðjudagur var bara í gær eða fyrradag... áður en maður veit er lífið komið í algert stopp, maður er fluttur upp á bókhlöðu og jólaskapið horfið :oS

mín er búin að vera óhemju dugleg núna síðustu morgna og búin að mæta kl 6:30 í ræktina bæði í dag og í gær. í gær var síðan farið beint í skólann og svo í vinnuna og mín skreið svo heim kl 8 í gærkvöldi, þá átti ég eftir að elda mér kvöldmat og vaska upp oooggg... svo var bara sofnað þar sem ég þurfti að vakna kl 6 aftur í morgun til að mæta í ræktina.... jább... svaka dugleg

í dag verður samt farið beint heim eftir skóla og farið að læra... núna er það bara að duga eða drepast þar sem prófin nálgast óðfluga (held ég stefni samt frekar á að drepast... sé hitt ekki fyrir mér í augnablikinu :O) )

á laugardaginn fór ég í keilu með mínum fyrrverandi bekkjarfélögum úr Borgarnesi og var bara æðislega gaman :o) það mættu alveg nokkuð fleiri en ég bjóst við, þar sem við erum nú alveg þekkt fyrir að láta ekki sjá okkur þótt við segjumst ætla að koma

síðan kíktum nokkur okkar niður á Hressó eftir keiluna en ég entist nú ekki lengi, þar sem, eins og magni minn segir alltaf um mig... "ég er bara rosalega þreytt manneskja" :o) hi hi, hann þekkir mig svo vel þessi elska :o)

annars var ég bara að vinna um helgina og haldið þið að það hafi ekki bara verið brjálað að gera... á bókasafni... er fólk ekki í lagi... hafið þið EKKERT annað að gera um helgar heldur en að fara á bókasafn????? :klikk:  viljið þið bara láta það vera....!!!!

jæja... er hætt í bili

 

 

ég og Bessý á hressó - pínu flass í gangi ?? :haha:

kv. litli "þreytti" laganeminn 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 11:20:57 / ingahelga

jólin fara að koma

já núna er mín barasta komin í þetta líka rosalega jólaskap, get ekki beðið eftir að jólin komi!!! eins gott bara að reyna að njóta þess sem best núna þar sem prófin eiga svo eftir að eyðileggja allt jólaskap í desember. góðu fréttirnar eru hins vegar þær að ég er búin í prófum kl 12 þann 20. desember sem er heilum degi fyrr en síðustu tvö ár, auk þess sem þá var ég ekki búin í prófi fyrr en kl 5 eða eitthvað þannig að sá dagur var bara búinn :D, já það er svona að vera á 3ja ári í lögfræði... bara lúxus ;) he he (hljómar skrítið en ég er rosalega ánægð að vera búin 20. desember!!!)

núna er síðasta utanlandsferðin búin á þessu ári... en ég kom heim frá Glasgow á sunnudagskvöldið. það var svaka stuð í þessari ferð og það var verslað af sér rassgatið... mín gat varla lyft ferðatöskunni sinni, og endaði með því að ég fékk svona "heavy" miða á töskuna mína!!! veit samt ekki hvað það var sem var svona þunngt.

ég keypti nokkrar jólagjafir og svo jólaföt og svo aðeins af fötum á mann, maður verður víst að endurnýja fötin sín öðru hvoru ;) he he

síðan er maður strax farin að skipuleggja fleiri utanlandsferðir, ég sver að því oftar sem maður fer því meira langar manni að fara erlendis.... þetta er eins og einhver sjúkdómur... eða fíkna:haha: en ég meina... þetta er allavegana góð fíkn... bara soldið dýr:)

við magni erum að spá í að fara til New York á næsta ári, líklegast í lok maí eða byrjun júní, þegar ég er búin í prófunum. þannig að ef einhverjum langar með okkur þá bara let me know:haha:

síðan langar mig rosalega að skella mér til London í janúar eða febrúar, fer eftir hversu mikið verður að gera í þessari blessuðu ritgerð... en það er nú svo sem enginn heimsendur að taka sér frí eins og eina helgi til að fara í heimsókn til hennar Óskar..... en ég heimta að fá að hitta Jamie Oliver!!!! hann er soddan krútt, og það væri ekkert verra ef hann væri til í að elda aðeins fyrir mig.... hehe

síðan átti hún Solla afmæli 29. okt.... TIL HAMINGJU !!!! og svo auðvitað hann magni líka þann 24. Október.... og fullt af öðru fólki, vá... nenni varla að telja alla upp.... en þið vitið hver þið eruð...;o)

á morgun er ég að fara á bekkjarmót, þar sem við borgnesingar sem vorum í árgangi 85 ætlum að hittast og jafnvel að skála... nema FLosi :o) he he,,,, hann er bara einhver lögfræðiplebbi sem fer frekar í kokteila heldur en að hitta okkur ;) he he

 

öss hvað maður getur verið heitur.... verst að hann er ekki ber að ofan... he he... en þeir eru alveg hættir að hafa hann berann að ofan í þáttunum, nenna örugglega ekki að vera að teikna tattoin á hann aftur og aftur.... :whut: en ég segi nú bara, hver væri ekki til í að fá einn svona í jólapakkanum sínum :lol:

 

kv. Litli jólalaganeminn


 


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 15:43:49 / ingahelga

Komin heim

jæja, kominn smá tími frá því að ég bloggaði, ekkert margt samt búið að gerast á meðan, en þó eitthvað. ég er búin að ákveða hvað ég ætla að skrifa um í BA ritgerðinni minni, já það er semsagt Rafræn vöktun sem verður viðfangsefnið, og þeir sem vita ekki hvað það er þá bara sorry... þið verðið bara að lesa ritgerðina mína :D hi hi

síðan er búið að skíra litla frænda og fékk hann það fallega nafn Helgi Snær.... sá sér einhver tengslin við mig ??? ;) he he, núna á ég barasta hluta í þeim báðum bræðrunum Elíasi Inga og Helga Snæ 8) jább þarna er nafnið mitt í miðjunni :haha: he he

um síðustu helgi var síðan brunað á Eyrabakka og farið og borðað á Rauða Húsinu, þetta var í tilefni þess að foreldar mínir áttu silfurbrúðkaupsafmæli, eða 25 ára brúðkaupsafmæli þann 16. október... þetta er bara slatta langur tími hjá þeim hjónakornunum. þannig að við systkinin ákváðum að bjóða þeim út að borða.... og mmmm þetta var ROSALEGA gott!!! jumm jumm:) humar er bara ÆÐI

Síðan þessa síðustu viku er búið að vera frí í skólanum þar sem það er verkefnavika... þá var bara málið að reyna að læra sem mest... og það gekk svona með misjöfnum árangri;) eins og við mátti búast

Síðan á fimmtudaginn brunaði ég upp í borgarnes og þaðan upp í bústað til Þorvaldar og Alrúnar og strákanna... þar sem við slöppuðum af alla helgina, síðan kom Guðrún á föstudeginum. Það var náttlega bara æði að geta verið þarna og farið í pottinn og svona dundað sér og borðað góðan mat:haha: ekkert smá gott.... og litlu frændur mínir eru náttlega bara æðislegir og sætir8) Á meðan ég var úti í sveit var svo magni bara að skemmta sér á Iceland Airwaves, svaka stuð.

Núna er bara rétt rúm vika í að ég skelli mér í helgarferð til Glasgow og versli af mér rassg....ið, he he... jeij :D og síðan eru bara rétt 2 mánuðir í jólin!!! úff hvað mig hlakkar til

en já held það sé bara komið....

skelli með nokkrum myndum

bæbæ

 

Elías Ingi að moka

Stóri bróðir að gefa pela :o)

Elías Ingi Sæti

Fjölskyldan

Þorvaldur og Alrún á leiðinni í pottinn

Alltaf svo góður við litla bróður :o)

Sæti sæti


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 14:56:28 / ingahelga

OMG - talandi um að stressa mann upp

hæ hæ... núna er barasta kominn miðvikudagur og vikan hálfnuð og við það að klárast :lol: manni fynnst bara eiginlega vera komin helgi þegar miðvikudagurinn er að klárast

ég var á fundi í skólanum um BA-ritgerðina mína, núna er bara komið að því að ég þarf að fara að ákvæða hvað ég ætla að skrifa um... en já við fengum sem sagt að vita áðan hvað maður hefur um að velja til að skrifa um.. og ég get nú ekki sagt að valið verði auðvelt þar sem þetta var nú ekki alveg sett fram eins og ég bjóst við... í fyrra voru nebblega settar alveg fram svona hálfgerðar spurningar sem maður átti að svara með ritgerðini sinni og þetta var svona meira afmarkað heldur en núna.... núna er bara listi yfir efni sem eru svo viðamikil að maður fær bara eiginelga fyrir hjartað þegar maður les yfir þetta.... úff

síðan var ég búin að ákveða að þetta yrði örugglega ekkert rosalega mikið mál að skrifa eina svona ritgerð en núna er ég bara að verða búin með neglurnar og er að byrja að naga puttana :(

konan sagði semsagt við okkur að núna ættum við að drífa í að velja okkur efni, byrja og finna heimildir og svo bara strax að skrifa.... hins vegar er áætlað að hafa svona fund fyrir okkur til að sýna okkur svona hvernig á að skrifa svona ritgerð og hvernig við finnum heimildir og daradara... en sá fundur er ekki fyrr en í janúar.... þá hugsar maður ja... ég á ekki að skila ritgerðinni fyrr en í apríl... ég hef nægan tíma... en NEEEIII við eigum að vera svo til búin með ritgerðina um miðjan febrúar og bara rétt að fínpússa hana eftir það.... AAAAAAAAAAA   pínu stress hérna í gangi 8|

alla vegana... tölum um eitthvað annað...... ég og magni fórum á ladda leikritið á sunnudaginn og það var líka bara svona rosalega skemmtilegt, maður hló alveg endalaust mikið.... síðan á mánudaginn fór ég með Magna og Hákoni í bíó á shoot'em'up eða hvernig sem maður skrfar þetta... og hún var bara æðisleg þessi mynd :D  vá hvað hún var fyndin og spennandi og bara allur pakkinn... þ.e.a.s. ef maður tekur raunveruleikan ekki of alvarlega :)

núna eru svo bara 29 dagar þangað til að ég skelli mér til glasgow.... jjeee... hlakkar svaka til :haha: shopping shopping shopping..... 

síðan á að skíra litla sæta frænda á sunnudaginn jeij... hlakkar til....

hmmm... eitthvað annað að fara að gerast..... jú... hún Ósk er að fara að flytja til London núna um miðjan mánuðin og ætlar að vera londonbúi í svona eins og eitt ár.... ég kem í heimsókn þegar Jamie oliver býður ykkur í partý :haha:  he he, en já ef fólk veit það ekki þá er hann Haukur að fara að vinna hjá þessum ofur sjónvarpskokki;) .... en þá er maður bara komin með góða ástæðu til að skreppa í eins og eina helgarferð til London í vetur

jæja... ætla að fara að halda áfram að stessa mig yfir þessum ritgerðarefnum... búin að fækka þeim niður í 12 möguleika... voru 15 til að byrja með þannig að þetta er allt að koma:S

 kveðja

Litli, stressaði, lati Laganeminn 


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 09:42:27 / ingahelga

slæm vika loksins að enda

það er sko ekki hægt að segja að síðasta vika sé búin að vera eitthvað til að hrópa húrra fyrir.... þó það hafði nú verið bjartirpunktar inn á milli

þetta byrjaði allt á fimmtudaginn þegar tölvan mín ákvað að fara í alhliða verkfall og gefa bara skít í elskulegan eiganda sinn... hún sem sagt neitaði barasta að kveikja á sér og kom bara með bluescreen dauðans og restartaði sér og svo gekk það svoleiðis aftur og aftur og aftur þangað til að magni sá enga aðra leið til þess að hemja skepnuna heldur en að formata hana.... og ég sem var ný búin að koma öllu í skipulag og allt orðið flott í kvikindinu.... missti sem betur fer ekki alveg allt dótið mitt þar sem ég átti afrit af næstum öllu inni á tölvunni hans magna, sem betur fer... annars væri kvikindið ekki á lífi lengur:evil: he he, en þetta olli mér bara meiriháttar pirringi og leiðindum auk þess sem ég misti allt skóladótið mitt frá þessari önn... heppni hvað ég var búin að vera löt!!

á föstudeginum var ég í svo mikilli fílu út í tölvuna mína að ég barasta beilaði á skólanum og chillaði heima og horfa illum augum á tölvuna öðru hvoru... ;) um kvöldið kíkti ég svo til hennar Bessýar í mat, ásamt henni jóhönnu, sem var barasta æðislegt... Bessý fór inn í skápinn og svona, hún er eitthvað að miskilja að maður á að koma út úr honum en ekki að fara inn í hann, en svona er þessi stelpa bara, veit ekki alveg hvað hún er að gera allta, ég meina halló Bessý mín,,, maður á að sitja á klósettinu en ekki standa ofan í því 8) he he... en allavegana þá var þetta bara rosa gaman :haha:

á laugardeginum vakti ég MEGA þunnan Magna minn með morgunmat í rúmið, amerískar pönnukökur með sírópi, jarðaber og ný kreistan ávaxtasafa úr ávaxtapressunni minni :D jumm jumm, elska hana :) síðan þegar þunni magni var vaknaður var keyrt á Selfoss, í heimsókn til minna elskulegu foreldra... ásamt systkinum mínum tveimur, mágkonu og tveim yndislegustu frændum í heimi :haha: he he, fæ aldrei nóg af þeim. en á selfossi var bara tekið því rólega og svo borðaður æðislegur kvöldmatur ásamt því að Blaka kom í heimsókn með litlu dúlluna sína... hi hi og Elías Ingi var alveg að missa sig, hann var svo hrifinn af henni... þurfti bara að vera að sína sig á fullu og sína henni allt dótið :haha: voru ekkert smá sæt! síðan eftir kvöldmat var bara skundað aftur í bæinn

á sunnudeginum vaknaði min svo með kvef og hálsbólgu dauðans... veit ekki hvað er málið með mig en þetta er í annað skiptið á 2 mánuðum sem ég fæ svona rosalegt kvef og allann pakkann með!! þessu fylgdu svo auðvitað beinverkir, hósti, hausverkur og slappleiki... auk þess sem ég hélt á svona 5 mínútna fresti að ég væri að kafna vegna kvefs....

á mánudeginu og þriðjudeginum lá ég bókstaflega heima uppi í rúmi af ótta við að ef ég hreyfði mig myndi ég kafna... er ekki að djóka... þetta var rosalegt kvef... þetta dró náttlega fram litla vælupúkann í mér og ég held að magni hafi verið að því kominn að henda mér út.... en ég meina... ef einhver á að vorkenna mér þá er það hann og ég var bara að sýna honum hvað ég ætti bágt ;)

í gær fór ég svo loksins í skólann, en það endaði svo kl 12 þegar magni minn kom og sótti mig og keyrði mig heim þar sem mín var komin með mega hausverk og eyrnaverk og munnverk... veit ekki alveg hvað það var... en allavegana er þessi munnverkur farinn núna :) í dag er mín svo barasta orðin nokkuð hress, svona fyrir utan mega kvef, hósta og síðan endalausar hellur sem ég er búin að vera með í nokkra daga... er samt eiginlega búin að venjast því að heyra svona dempað í öllum í kringum mig... verður örugglega skrítið að fá síðan fulla heyrn aftur... þá verða bara læti!

jæja, hættum að tala um svona leiðilega hluti, minns er svo barasta að vinna um helgina ásamt því að ég og magni ætlum að skella okkur í leikhús á sunnudaginn ásamt Gústa og Sigrúnu á ladda leikritið... hlakkar barasta soldið til.. síðan á sunnudaginn eftir viku á að fara að skíra litla kút... öss hvað mig hlakkar til að vita hvað hann á að heita...er að farast úr forvitni :D

en já... læra læra... er farin að hlutsta á hann eyvind vin minn

síja


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 09:48:45 / ingahelga

komin heim frá spáni - skólinn kominn á fullt

já loksins eitthvað að frétta frá mér 8) við magni komum heim frá spáni á fimmtudaginn eftir viku leti og skemmtun... það var voðalega lítð annað gert en að slappa af, borða góðan mat og slappa af ;) þó fórum við aðeins að versla og á markað og svona :)

ég fékk líka að upplifa alvöru þrumuveður eina nóttina þar sem ringdi og ringdi og þrumur og eldingar og allur pakkinn;) very nice... finnst svona veður bara cosy

Litli frændi ákvað að mæta í heiminn daginn áður en ég fór út, bara svona svo ég gæti farið og knúsað hann aðeins áður en ég færi :haha: ég var reyndar búin að ákveða að hann myndi bara fæðast á meðan ég væri á spáni, þannig að þegar Þorvaldur hringdi í mig til að segja mér að sá litli væri fæddur þá trúði ég honum ekki og það tók hann alveg nokkrar mínútur að sannfæra mig um að hann væri ekki að ljúga :lol: he he...

skólinn er svo kominn á full hjá manni og ég er búin að fá út úr sumarprófunum mínum sem ég sem betur fer náði bara með stæl... þannig að ef ég fer ekki að klúðra prófunum mínum núna þá er ég barasta að fara að ná mér í eins og eina BA gráðu í lögfræði í vor;) he he, frekar skrítið að segja það... eeennn við skulum ekkert spá í því af því að það vita allir að ég er ágæt í að klúðra hlutunum þegar mér henntar

núna eru bara 45 dagar þangað til ég fer til Glasgow til að versla.... maður verður nú að fara einhvern tíman til útlanda :D dugar ekki að hanga bara hérna heima alltaf

jæja... ætli það sé ekki best að ég fari að fylgjast eitthvað með kennaranum... þarf að gera það ef ég ætla að útskrifast í vor :haha:....

læt fylgja með myndir af sæta litla krúsí krúsi frænda

 

 

 
 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 13:10:56 / ingahelga

sumarið er búið :o(

það er nokkuð ljóst að sumarið er nokkurn vegin búið... núna er það bara rigning og rok sem ræður ríkjum.  mér varð það ljóst þegar ég var að labba heim áðan og sama hversu mikið bílarnir reyndu að sveigja frá mér þá var bara vatn yfir allri götunni og það skvettist auðvitað upp í loftið og síðan tók vindurinn við því og feykti því beint framan í mig.... var ekkert smá fegin að vörubílarnir sem keyrðu framhjá hægðu rosalega á sér og sveigðu alla leiðina inn á hina akreinina til að forðast að skvetta fleiri fleiri lítrum yfir mig... síðan segir fólk alltaf að vöruflutningabílstjórar séu fífl... neeeiibb, alla vegana ekki í dag :D

Ég byrjaði loksins aftur í skólanum í dag. mætti í refsirétt, var alveg sæmilegur tími en kennarinn, sem er kona, er held ég ekkert skemmtilegast kennarinn í pleisinu... frekar dauf svona:S

á morgun er síðan barasta frí hjá minni í skólanum, eins gott að byrja ekki of hratt ;) ... var náttlega í heila 2 klst í skólanum í dag... alveg rosalegt álag og síðan er aftur skóli í 2 klst á miðvikudaginn, he he... síðan er mín barasta flogin til spánar í viku í sólina... gott að losna aðeins við þessa rigningu 8)

Litli "nýji" frændi er ekkert búinn að láta sjá sig, þrjóskast við að bíða eftir að ég er farin úr landi áður en hann birtist :$   ohhh... þessi börn nú til dags. en hann verður allavegana POTTÞÉTT kominn þegar ég kem heim frá útlöndunum

jæja, ætli maður fari ekki að vinna eitthvað... ha ha... svaka brandari :haha: 

 

læt fylgja með mynd af því sem ég ætla að vera að gera á fimmtudaginn, bæbæ

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 16:27:59 / ingahelga

loksins - loksins

Ég ákvað að þar sem ég hefði eiginlega ekkert annað og betra að gera hérna í vinnunni að þá væri bara um að gera að blogga.... enda eru jólin löngu búin 8)

Ég er semsagt búin í sumarprófunum mínum og byrjuð að vinna aftur á fullu (eða svona eins og hægt er þegar maður er að vinna á bókasafni ;)  ) síðan byrjar skólinn aftur á mánudaginn eftir viku og viti menn... mig hlakkar barasta til að byrja aftur í skólanum

Síðan á fimmtudaginn í næstu viku, þremur dögum eftir að skólinn byrjar, ætla ég og magni að skella okkur í viku til spánar 8) með fjölskyldunni hans magna, þar sem verður flatmagað og legið í leti... jeij:D

síðan eftir það er það barasta skólinn á fullu og vinna inn á milli og með....

minns var svo í klippingu og litun í dag og minns er barasta orðin þessi líka blondína :D  he he, og búið að stytta töluvert mikið af þessu mikla hári sem ég var með... úff hvað þetta var gott- veitti sko ekki af

reyni síðan að blogga oftar en á hálfs árs fresti.... en tek fram að ég Reyni - en lofa engu:haha:

 

Setti svo eina mynda af sætasta frænda í heimi... sem fer að verða stóri bróðir :haha: 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 666 dögum
New York here I come
Könnun
Hver skoðar síðuna mína?